Refund policy
SKILMÁLAR NETVERSLUNAR
Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðslur og verð
Allar greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði hjá Teya. Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Sendingarmáti
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager verður pöntun eytt og greiðsla endurgreidd að fullu til viðskiptavinar. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Frí sending er á pöntunum 10.000 kr. og yfir nema annað sé tekið fram.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.
Skilafrestur eða endurgreiðsla
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi/kvittun sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, og er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Athugið að ef vara er á sértilboði eða útsölu þá gildir verðið þann daginn sem vöru er skilað. Gildir þetta eingöngu um vefverslun. Aldrei er hægt að skila eða skipta útsöluvöru sem keypt er í versluninni sjálfri.
Undantekningar Af hreinlætisástæðum tökum við ekki við skilum eða skiptum á nærfatnaði sem hefur verið prófaður án undirfata eða sem ber merki um notkun. Þetta á við um nærbuxur sem og sundfatnað.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.
Persónuupplýsingar og trúnaður
Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Viðskipti við Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf eru í samræmi við íslensk lög. Rísi upp ágreiningsmál vegna þeirra, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.