Terms of service

ÞJÓNUSTUSKILMÁLAR

Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf, kt: 590526-1180, með lögheimili að Langagerði 42, 108 Reykjavík, rekur þessa netverslun.

Notkun vefsvæðis Með því að nota þetta vefsvæði og gera kaup samþykkir þú þessa skilmála í heild sinni. Vefsvæðið er ætlað einstaklingum 18 ára og eldri.

Pantanir og samningsgerð Pöntun telst staðfest þegar staðfestingarpóstur berst frá okkur. Við áskilum okkur rétt til að hafna eða hætta við pantanir, t.d. vegna birgðaskorts eða rangra verðupplýsinga, og verður greiðsla þá endurgreidd að fullu.

Verð og greiðslur Öll verð eru með virðisaukaskatti. Greiðslur fara í gegnum öruggt greiðslukerfi Teya. Við tökum við greiðslukortum og öðrum þeim greiðslumátum sem í boði eru við greiðslu.

Hugverkaréttur Allt efni á þessu vefsvæði, þar með taldar myndir, textar og vörumerki, eru eign Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf og má ekki nota án leyfis.

Ábyrgðartakmörkun Ungfrú Lilith Undirfataverzlun ehf ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun vefsvæðisins eða vöru keyptar þar.

Breytingar á skilmálum Við áskilum okkur rétt til að breyta þessum skilmálum án fyrirvara. Skilmálar sem gilda eru þeir sem birtast á vefsvæðinu á hverjum tíma.

Lög og varnarþing Um þessa skilmála gilda íslensk lög. Ágreiningur sem kann að rísa vegna viðskipta skal rekinn fyrir íslenskum dómstólum.