Harlem Candle Co Ilmkerti Frederick
HC0008
Ilmkerti frá Harlem Candle Co. 300g.
Þetta kerti er til heiðurs Frederick Douglass, frelsishetjunni, rithöfundi og stjórnmálamanni sem barðist fyrir afnámi þrælahalds í Bandaríkjunum. Brons stytta af honum stendur við inngang Harlem, New York.
Topptónar: Bergamot, reykt yuzu og grænar kardimommur
Hjartatónar: Brönugras, sýprusviður og engiferblóm
Grunntónar: Tonkabaunir, rúskinn og sandalviður
MEÐFERÐ KERTIS
Setjið kertið á slétt og stöðugt yfirborð í því rými sem þið viljið og látið það aldrei loga lengur en í fjórar klukkustundir í senn. Þegar kveikt er á kertinu í fyrsta skipti skal leyfa efsta lagi vaxsins að bráðna jafnt út að brúnum ílátsins. Haldið kertinu frá dragsúgi, opnum loftventlum og loftviftum.
Til að varðveita hreinleika ilmsins skal gæta þess að bráðna vaxið sé ávallt laust við afklippta kveiki og önnur óhreinindi. Til að njóta fullkominnar Harlem Candle Company upplifunar skal slökkva á loganum með kertaslökkvara og snyrta kveikinn með kveikklippum áður en kveikt er aftur á kertinu.
Skiljið logandi kerti aldrei eftir án eftirlits og geymið það þar sem börn og gæludýr ná ekki til. Látið kertið aldrei brenna alveg niður. Skiljið alltaf eftir að minnsta kosti 1,3 cm af óbráðnu vaxi í botni ílátsins.
Þér gæti einnig líkað við