Harlem Candle Co Ilmkerti Josephine
HC0004
Ilmkerti frá Harlem Candle Co. 300g.
Frá vinsælustu jazzklúbbum Broadway til Follies-Bergere í París, þetta kerti er til heiðurs frönsku sviðslista konunnar Josephine Baker. Oft nefnd ,,hin svarta Venus".
Með þessu kerti mælum við með að hlusta t.d. á All of Me með Billie Holiday eða kannski Blue Skies með Ella Fitzgerald.
Topptónar: Sítrus og bergamót
Hjartatónar: Jasmín og rós
Grunntónar: Sandalviður, tonkabaunir, amber (raf) og vanilla
MEÐFERÐ KERTIS
Setjið kertið á slétt og stöðugt yfirborð í því rými sem þið viljið og látið aldrei loga lengur en í fjórar klukkustundir í senn. Þegar kveikt er á kertinu í fyrsta skipti skal leyfa efsta lagi vaxsins að bráðna jafnt út að brúnum ílátsins. Haldið kertinu frá dragsúgi, opnum loftventlum og loftviftum.
Til að varðveita hreinleika ilmsins skal gæta þess að bráðna vaxið sé ávallt laust við afklippta kveiki og önnur óhreinindi. Til að njóta fullkominnar Harlem Candle Company upplifunar skal slökkva á loganum með kertaslökkvara og snyrta kveikinn með kveikklippum áður en kveikt er aftur á kertinu.
Skiljið logandi kerti aldrei eftir án eftirlits og geymið það þar sem börn og gæludýr ná ekki til. Látið kertið aldrei brenna alveg niður. Skiljið alltaf eftir að minnsta kosti 1,3 cm af óbráðnu vaxi í botni ílátsins.
Þér gæti einnig líkað við