Harlem Candle Co Ilmkerti Langston
HC0001
Ilmkerti frá Harlem Candle Co. 300g.
Til heiðurs hins goðsagnakennda jazzskálds, Langston Hughes.
Ilmkeimur kertisins endurspeglar kraftmikla táknfræði og djúpstæða listsköpun hans, sem mótaði einstakan bókmenntaarf og heldur áfram að veita kynslóðum innblástur.
Með þessu kerti mælum við með að hlusta t.d á In a Mellow Tone með Duke Ellington eða kannski Mood Indigo með Nina Simone
Topptónar: Múskat, negull og leður
Hjartatónar: Jasmínblóm og cade-einiviður
Grunntónar: Vanilla, sandalviður og amber (raf)
MEÐFERÐ KERTIS
Setjið kertið á slétt og stöðugt yfirborð í því rými sem þið viljið og látið það aldrei loga lengur en í fjórar klukkustundir í senn. Þegar kveikt er á kertinu í fyrsta skipti skal leyfa efsta lagi vaxsins að bráðna jafnt út að brúnum ílátsins. Haldið kertinu frá dragsúgi, opnum loftventlum og loftviftum.
Til að varðveita hreinleika ilmsins skal gæta þess að bráðna vaxið sé ávallt laust við afklippta kveiki og önnur óhreinindi. Til að njóta fullkominnar Harlem Candle Company upplifunar skal slökkva á loganum með kertaslökkvara og snyrta kveikinn með kveikklippum áður en kveikt er aftur á kertinu.
Skiljið logandi kerti aldrei eftir án eftirlits og geymið það þar sem börn og gæludýr ná ekki til. Látið kertið aldrei brenna alveg niður. Skiljið alltaf eftir að minnsta kosti 1,3 cm af óbráðnu vaxi í botni ílátsins.
Þér gæti einnig líkað við